Jóhann Björn Arngrímsson
    <language>is</language>
Veturinn 22
Jólakveðja 
      <description>Kæru  vinir og ættingjar, við Bía sendum ykkur ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ári, 16 barnabarnið kom í heiminn í gær 23 12 en það var drengur sem Nína og Søren eignuðust, þökkum ykkar vináttuna á liðnum árum.Ég viðurkenni að ég hef ekki verið nóu duglegur við að skrifa á þessa síðu eða að setja inn myndir en ég skal reyna að bæta úr því. Í dag er stiningskaldi að sunnan og 5 gráðu hiti um hádegið og dálítil hálka myndin er af jólatréinu á hjúkrunardeildinni Hólmavík, set mynd af tréinu heima síðar.Þetta ár hefur verið frekar erfitt til að hitta vini og kunningja varla að maður hafi farið útfyrir Hólmavík en hef nú eiginlega farið í Búðardal á hverjum fimmtudegi á árinu vegna vinnunar flestallir fundir hafa verið á netinu þetta árið.Sendum ykkur jóla og hátíðarkveðjur.</description>
Vorið kemur bráðum
      <description>Ég er nokkuð viss um að vorið fari að koma og ég geti hætt að ganga í stígvélum með mannbrodda dags daglega. Það er allt hið besta að frétta af mínu fólki bæði afkomendum og systkinum. Það taka flestir því rólega í veirufaraldrinum. Ég setti nokkrar myndir í myndaalbúmið frá Ernu á eftir að setja nöfn við þær sem ég veit um nöfn á. Þetta er Ólöf Ingimundardóttir amma mín.Hér er mynd af pabba og Laufeyju Einarsdóttur sennilega jólaboð því það eru Lindu konfektkassar á borðinu. Þau dvelja nú í sumarlandinu.Hér kemur mynd sem ég held að sé tekin í heyskap í Goðdal sennilega 1949. Ég þekki Einar, Munda og Ingu, Kristjönu og Halla hverjir skyldu hinir vera gaman væri að vita það.</description>
Myndir frá Ernu 
      <description>Skrapp norður í Odda og vegurinn yfir háls var snjólaus smá hálka, fékk nokkrar myndir frá Ernu til að skanna inn.Arngrímur Jóhann IngimundarsonArngrímur og Ingimundur Ingimundarson þarna eru þeir að setja fjárhúsgrindur á vörubílinn en hvar myndin er tekin er ég ekki alveg með á hreinu en dettur í hug í Kaldbaksvík við gömlu fjárhúsin í Kaldbak sem voru við ána sem kom úr gilinu.Þessi mynd er nú sennilega tekin á sama tíma skoðunarmiðinn í bílrúðunni á honum er ártalið 1962Þessi mynd er tekin á páskum 26 mars 1967Svo er hér mynd sem er sennilega tekin í Goðdal þekki ekki þá sem eru á myndinni.</description>
Mynd dagsins
      <description>Það hefur verið hið besta veður í dag eftir byljótta daga en mikil hálka hefur verið.Frá vinstri. Anna Jóhannsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir og Friðrik Andrésson með Sigvalda Ingimundarson á háhest.</description>
Mynd af Jóni og Ha
      <description>Mynd úr safni Sigríðar Ingimundardóttir Til vinstri er Jón Jónsson Pétursonar og við hlið hans er Hallfreð Bjarnason</description>
Gleðileg jól
      <description>Óska öllum gleðilegra jóla þessir jólasveinar komu ofan af fjöllum í gær.</description>
Ýmislegt
      <description>Setti inn nokkrar myndir af brúðkaupi Hlyns og Sóleyjar. Fermingu Sólveigar og fl.Sólveig María og pabbi hennar Valgeir Örn.Með ömmu sinni og afa í föðurætt.Með ömmu sinni og afa í móðurætt.Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir og Hlynur Þór Ragnarsson Takið erftir því að svaramaðurinn er í spariskónum.</description>
Hópmynd 5 júlí 2019
      <description>Þetta er hópmynd af mér og Bíu með börn og maka og barnabörn það vantar Jóa og fjölskyldu.</description>
12 jan 2019
      <description>Það var hávaðarok á miðvikudaginn einhvað fauk hérna á Hólmavík en ekki nein stórtjón sem betur fer. Í dag hefur snjóað kafaldsmugga úr norð austri annað bara gott hérna. En viðurkenni að ég gleymdi að horfa á handboltan í dag, kemur ekki oft fyrir að það gleymist. Ég var ekki með nein áramóta heit núna en lít björtum á árið sem er að byrja.Þessa mynd tók ég austur í Skriðdal í sumar það er saltið á veginum sem þær sækja í eða er verið að rækta saltkjöt ?Það er nú ekki rétt dagsetning á myndinni en þetta er á gamlárskvöld þarna erum við með humar og hörpudisk í forrétt.Nautakjöt í aðalrétt allt steikt á þessum steini, Úr skelinni gerði Bía humarsúpu á nýársdag sem forrétt og það var mínútusteik í aðalrétt. Siggi var sá eini sem gat borðað ís í eftirrétt.Þessa mynd tók ég á þrettándanum nágranni minn er að vinna í lóðinni hjá sér og innrétta gistiheimili á nr 22 þetta mun líta betur út í vor.</description>
3 janúar 2019
      <description>Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna.Þá eru jólin að verða búin en á þrettándanum verður síðasti dagurinn og daginn eftir þá þarf að pakka jólunum niður á mínu heimili ef ég nenni eins og segir í textanum. Ég var svo heppinn að hitta jólasveinana þegar þeir komi af fjöllum. Það var hið besta veður um hátíðirnar nema á gamlársdag þá var bylur. Það kom skip að sækja heyrúllur sem fara til Noregs svona er veðrið búið að vara í mest allan vetur logn og sléttur Steingrímsfjörður.Þessi mynd er tekinn 24 nóvember og þá er logn og sólskyn hjá okkur.Af okkur Bíu er allt gott að frétta hún grennist en ég stend nú í stað með þyngdina.Bestu kveðjur til þín lesandi góður.</description>
Gamall
      <description>Það kemur að því að ég fari að setja inn myndir og tjá mig einhvað.</description>
Þriðjudagur
      <description>Það er núna norðaustan átt með rigningu snjórinn víkur fyrir vorinu. Í gær var stafalogn og sæmilegur vorhiti. Spegilsléttur Steingrímsfjörður svona er veðrið búið að vera síðustu daga.Þessi mynd er frá því að við fórum á Akureyri síðasta sumar frá vinstri er Erla, Bía Nína tengdamamma og Loftur Hafliðason sambýlismaður Nínu en þennan dag hélt hún upp á 80. árinSjávarréttakvöld Lionsklúbbsins á Hólmavík var haldið föstudaginn 13. apríl og það mættu 68 manns og í dyrunum stendur Steini skreytingarmeistariÞennan vin minn hann Árna hitti ég þegar ég var að koma frá Akranesi í mars mánuði en eins og flestir vita þá eru fjórar bensínstöðvar í og við Borgarnes þarna er Árni rétt kominn yfir Borgarfjarðarbrúna á leið suður varða að hringja í Olís í Borgarnesi og fá sendan bensínbrúsa en þess má geta að það eru tveir bensíntankar í þessum bíl. Hver er lærdómurinn ? Hann er sá að betra er að tanka oftar en sjaldnar.</description>
Hólmavík 11 feb 2018
      <description>Já það snjóaði dálítið í gærkveldi, nótt og fram að 9 í morgun, Bía ýtti mér á fætur fyrir 8 í morgun til að moka eina starfsstúkluna út sem var í heilsugæsluíbúðinni og það var þó nokkur snjór á götunum.Það var komin góður skafl.En gat mokað göng það var bylur þegar ég var að því kl átta í morgun.Það er hægt að ganga handriðið í logni en ekki í byl.Snjólaust við vesturinnganginn.Snjóruðningur á BorgabrautHalldór Jónsson læknir mokaði frá norður innganginum á sjúkrahúsinu.Kannski verða þau Bía og Gísli búin að moka frá hurðunum heima svo ég komist inn.</description>
Jólakveðja 2017
      <description>Við Bía sendum ykkur okkar bestu óskir um fögnuð og frið á jólahátíðinni og farsældar á komandi ári þessi mynd var tekin af okkur þann 11 september árið 2001 í Alsaka.</description>
Tíminn
      <description>Tíminn er svolítið afstæður held alltaf að ég hafi meiri tíma til að gera hitt og þetta en dagurinn er bara búinn áður en maður veit af. Ég fór í Skarðsrétt og tók nokkrar myndir þær eru í myndaalbúmi réttir 2017Þar var rauðklætt fólk Heiðrún og Ingólfur.Einnig Haraldur Vignir og ÁsdísÞar var líka Jói og Oddný Lilja Þar voru líka gulu bræðurnir Óskar og Óli.Gísli Mar stóð sig vel í að draga fé í Odda dilkinn Þarna eru Oddný Lilja og Kolla tengdadóttir ásamt öðrum réttargestum.Við Bía og Valli skruppum til Noregs í eftir réttirnar í endaðan september að heimsækja Hlyn, Sóley, Ísabelli og Lovísu Ósk. Valli hélt upp á 40 ára afmælið þar. Þau komu frá Danmörku Nína og Sören með börnin þann 28/9 og fóru til baka 1/10 við Bía fórum þá líka til Danmerkur.Það var margt á skoða í Árnesi hjá þeim Hlyn og Sóley en þau búa að vestanverður við ána Glommu það er 10 mínútna gangur í miðbæinn hjá þeim. Ég fór í sundlaugina þar en hún er nýbyggð og er vel hönnuð en engin heitur pottur en gott gufubað og stór nuddlaug. Við fórum á fótboltaleig þar sem Ísabella spilaði, skoðuðum hesthús í leiðinni. Fórum í Osló skoðuðum þar styttugarðin og götuna sem kennd er við Ólafíu en fundum ekki stittuna af henni svo við Bía verðum að fara þangað aftur. Þarna eru Sóley og Bía komar í hús klukkan er fimm, Ég skrapp aðeins í búðina en gangstéttin er ansi mjó.Þarna á víst að koma hringtorg sennilega á næsta ári.</description>
8 maí
      <description>Já ég hef ekkert skrifað síðan í febrúar og núna komin maí það hefur margt gerst síðan til dæmis er búið að ferma tvö barnabörn af þeim 12 sem ég á og 13 væntanlegt í nóvember. Veðrið er búið að leika við okkur eins frést hefur glampandi sólskin síðustu daga með smá þoku inn á milli. Hvalirnir synda og blása hérna á Steingrímsfirðinum. Það eru nokkrar myndir í nýasta albúminu.Arnar er komin með bílprófSóley bauð okkur Bíu í sumarbústað sjá allt þetta grænmetiEn það var nú út í kjötsúpuna fyrir þau Arnar og ÍsabelluLovísa hafði gaman af því að marka för í nýfallin snjóinnValli og Borgar eru búnir að byggja þetta fína hús 4 mars var snjóföl á Hólmavík en logn á firðinumVið minnsumst Unnars þann 17 marsHérna er mynd frá Halldóri þarna er Hera Sóley með handboltaliðinu sínu</description>
27 feb 2017
      <description>Jæja smá upplýsingar í dag hefur verið gott veður kom sól eftir hádegi og hitinn um 3 gráður sem er bara gott. Nú fer Meistaramánuði að ljúka og einhvað af mínum markmiðum náði ég þó ekki öllum því sem ég náði best var að sofa 8 tíma svona flestar nætur, lesa meira og tók 10 til 20 mínútur á dag í stigvélinni, léttist ekki en safnaði aðeins vöðvum.Skírn 13. nóvember 2016 kl 9:22 að dönskum tíma.Eftir skírnina fóru þau að gröf föðurömmu sinnar en hún dó 1985Þessi terta var í skírnarveislunni þegar Aron Máni og Adda Björk voru skírð þann 13 nóvemberMávastellið var tekið fram Þau tóku bara lúr á þetta Aron og Adda Hera Sóley, Aron Máni og Adda Björk</description>
21 feb 2017
      <description>Í dag hefur verið norð norð vestan átt og 2 gráðu frost frekar kalt miða við það sem maður hefur átt að venjast síðustu daga. Til gamans set ég nokkrar myndir hérna núna. frá nóvember 2016Hera Sóley Halldórsdóttir að keppa í handbolta.Hann Valli þessi loðni vill fylgjast með að Adda Björk fái nóg að drekka.Það er nú meira hvað Aron Máni getur sofið gæti Adda Björk verið að hugsa.Ég bara bíð eftir að þeir dönsku komi og moki gangstéttirnar þær eru alltaf mokaðar á Hólmavík.Þegar búið er að flokka ruslið þá þarf að koma því í endurvinnslunina en þangað er 1 km það tók 50 mínútur ferðin með viðkomu í Maskínubúðinni.Þarna er myndataka af flottum fyrirsætum. Adda gjóir nú augunum á ömmu sína sem er myndasmiðurinn að þessarri mynd.Bless.</description>
Kemur að því
      <description>Það kemur nú að því að ég fari að setja myndir hérna inn og skrifa einhvað að viti set eina mynd Það er Billi og nýja dráttarvélin hann var að tala við veðurstofuna til að vita hvort það væri ekki snjókoma í kortunum.kv jba</description>
Haust
      <description>Fyrst er það að segja að Nína Matthildur og Søren eignuðust tvíbura þann 6. október og hérna er mynd af þeim.Nöfnin passa við myndina.Jæja en þá er best að handa áfram með sumarið en það var ýmislegt sem gerðist meira en það sem ég skrifaði síðast um.Halldór Páll útskrifaðist sem verkfræðingur frá þessum skóla Þarna eru við mætt í salinn Linda, Halldór og BíaEftir danskan sögn og nokkrar danskar ræður þá fékk hann umslagið með staðfestingu á að hann væri orðin verkfræðingur með sérgrein í burðarþoli.Í því tilefni var slegið upp veislu sem Nína og Hlynur sáu um.Að sinni alkunnu snild sjáið Hlyn með sleifina.Þarna eru hjónin spariklædd.Við holusteiktum kjöt Það kom Dönum á óvart að við værum enn þá að steikja að fornum sið á langeldi sem við svo huldum til að hitinn héldist í holunni.El kjötið smakkaðist vel Daginn eftir voru tertur að hætti Halldórs og LinduGrillaðir sykurpúðar yfir eldi.En einhvað fannst Gísla það ganga hægt svo hann gasaði bara sykurpúðann.Svo var keppni í teyjubyssusmíði.Það eru fleyri myndir í myndaalbúminu.</description>
Júní - júlí 2016
      <description>DaginnÞað var haft samband við mig og ég minntur á að það væri orðið langt síðan ég hefði ritað einhvað á síðuna, en bæti aðeins úr því núna. Fyrst er það sjónin Haraldur auglæknir er búinn að útskrifa mig aðgerðin tókst vel og nú er ég fjarsýnn á hægra auganu og nærsýnn á því vinstra en það var augað sem sjónhimnurofið varð á, ég loka bara augunum á víxl eftir því hvað ég er að gera.Við Bía fórum til Danmerkur 25. júní að heimsækja börnin sem þar búa og Gísli Mar fór með okkur út. Halldór og Nína sóttur okkur til Billund en þaðan eru tæpir tveir tímar í akstri til Álaborgar. Við Bía héldum til hjá Nínu Matthildi og Søren en þau eru í stóru húsi og lóðin er einn og hálfur hektari.Set inn nokkrar myndir og skrifa síðan einhverjar skýringar við þær síðar.Søren var búinn að flagga íslenska fánanum þegar við komum.Þarna vorum við öll saman komin í síðdegiskaffi og það voru brauðbollur sem Søren bakaði og rabbabarasulta sem Nína gerði úr rabbabaranum sem er í garðinum, þessi mynd er tekin 25/6 kl 18:43Pabbi Sørens sér um að slá garðinn og mætti á mánudagsmorni kl 7 að slá garðinn.Það var hellirigning og þá var bara tekinn einn hringur í Olsen.Sniglarnir hengju á rabbabaranum.Nína Matthildur og Søren að vökva í gróðurhúsinu þarna er klukkan orðin hálf níu að kveldi 27/6.Sniglarnir hanga á hindiberjaplöntunni.</description>
Ýmislegt í byrjun maí 
      <description>Ég fór í augnaðgerð þann 17 maí.og á bara að hvílast næstu daga.</description>
Ótitlað
      <description>Þá er kominn 8 maí og ekki hef ég staðið mig í því að koma með einhvað á síðuna mína en bæti aðeins úr því núna. Veðrið hefur verið hendur leiðinlegt kalt og snjókoma af og til en það horfir nú til batnaðar. Nína Matthildur á von á tvíburum í október.Fórum í fermingarveislu hjá Ævari HelgaArngrímur, Arnór, Ævar Helgi, Mundi og Þorbjörg Ég fékk blæðingu inn á vinstri augnbotn og í framhaldinu sjónhimmnulos sem ég fer í aðgerð út af 9 maí sé nú ekki mikið með auganu en það lagast vonandi eftir aðgerðina.Gísli kom til okkar síðast vetrardag en þá vorum við á leið til Reykjavíkur og tókum hann í Staðarskála en þessi mynd er tekinn í Humarhúsinu á Stokkseyri á sumardaginn fyrsta.Við komum líka við í Hveragerði Þar vaxa bananar og apinn passar upp á þá Steini tók á móti nýjum bíl þann 22 apríl er við vorum að fara á Lionsþingið í Mosfellsbæ.Hólmavík á björtum degi</description>
Ótitlað
      <description>DaginnÍ dag þegar þetta er skrifað þá hefur verið tíðindalaust nema það var bylur í gærmongun og fyrradag og sett niður mikinn snjó í plássið á Hólmavík. Ég hef lítið verið á faraldafæti en skrapp þó til Ísafjarðar í janúar og fer kannski til Reykjavíkur í núna í febrúar. Það var smá snjór hjá þeim Unnari og Eiríki.Sólarupprisan er oft mjög falleg.Tók þessa mynd fyrir hádegi 5 feb.Fljótlega eftir hádegi stytti snögglega upp þá fór Sigga að leita að bílnum sínum.Sverrir kom svo og hjálpaði henni að ná bílnum úr skaflinum.Það gekk vel að draga bílinn úr skaflinum.En það mátti lesa númer og tegun í snjónum.Vilhjálmur Ari lagði í það að moka báða bílana upp.Svona leit minn bíll út þegar ég kom heim úr vinnunniBía kom heim og mokaði bílinn upp með aðstoð frá mér og Arnari.</description>
Gleðilegt nýtt ár
      <description>Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.Áramótin voru hefðbundin á mínu heimili unga fólkið fór á brennu og það gamla var heima að hugsa um matinn, þó svo að það hefi verið gert allan daginn, smurðar snittur steiktur kjúklingur og hamborgarahryggur það voru 12 í kvöldmat og allir ánægðir með matinn. Síðan var flugeldunum skipt á milli barna og fullorna, horft á skaupið síðan skotið upp flugeldum. Það tók smá tíma enda þurfti að horfa á hvern og einn flugeld. Það reyndi mest á Hlyn og Bíu á þeim vettvangi.Morgunroðinn er oft fallegur hérna á HólmavíkÞað slær bleikum blæ á snjóinnGísli Mar að ferðbúast heim eftir jólin fékk bakpokasem við fundum niðri í kjallara til að hafa jólagjafirnar í.Þarna eru vinkonurnar mættar Ísabella, Sunna og BrynhildurLovísa Ósk var hrifin af húsinu sem ég smíðaðiSunna hélt smá afmælispartý.Ég prufaði nálastungu á árinu í fyrsta sinn.Lofvísa var að skoða youtube Þá var það áramóta kvöldverðurinn.Og síðan kvöddum við árið 2015. Guðbrandur Snær stóð sig vel í handblysunum.</description>
Gleðileg jól
      <description>Óska ykkur gleðilegra jóla. Héðan er allt gott að frétta og af mínu fólki er það líka ekki veit ég annað Gísli verður hjá okkur um jólin og í gærkveldi var hann orðin smá spenntur fyrir deginum í dag og bað um að vera vakinn kl 7 þegar ég vakti hann í morgun og spurði hvort hann ætlaði á fætur var svarið nei ætlaði að sofa aðeins lengur til að geta vakað frameftir í kvöld. Við ætlum bara að hafa það kósý í kvöld við verðum 4 saman Gísli, Valli og við gömlu hjónin ( Bía er ekki komin í félag eldri borgara enda nokkur ár í að hún komist inn í þann félagsskap ) Það verður purusteik í kvöldmat ásamt hefðbundnu meðlæti og hátíðarís á eftir.Jólatré í stofu stendur, skreytt af Gísla Mar.</description>
Snjórinn kominn
      <description>Jæja þá er snjórinn komin hérna á Hólmavík og víðar á landinu. Veit ekki annað en héðan sé allt gott að frétta en set 2 myndir sem ég tók í gærkveldi.Það er ca 20 sm jafnfallinn snjór.Það var alveg um frostmark kl 22 </description>
Til hamingju Nína og Søren
      <description>Daginn Nína og Søren eru að kaupa þetta hús í Hillerup þau ætla að flytja í byrjun desember í það.Ég er að spá í að gerast garðyrkjumaður hjá þeim í ellinni ég held að það sé dagsvinna að slá lóðina. Það eru fleyri myndir í myndaalbúmi.Svo er þessi flotti bílskúr hjá þeim</description>
Fórum til Vestmannaeyja
      <description>Jæja smá skrif hérna núna um daginn fórum við Bía ásamt mömmu hennar og Lofti til Vestmannaeyja að heimsækja Erlu en Tryggvi var á sjó. Þetta var skemmtileg ferð en var bara helgin. Loftur var að halda upp á afmælið sitt. Bía var nú ekki sjóveik í þessu ferðalagi.Vestmannaeyjar tóku vel á móti okkur í rokkrinu.Erla flutti móttökuræðu í tilefni komu okkar, þar sem hún lýsti ánæju sinni með komu okkar til Eyja og vænti þess að dvölin yrði ánnæjuleg þó að veðurspáin væri ekki góð rok og rigning.Á laugardaginn fórum við í bíltúr um eyjuna skoðuðum hjólasafnið hjá Tryggva,Fórum á kaffihúsið hjá Erlu fengum hinar bestu veitingar.Skoðuðum þjóðveldisbæinn og fl.Nína og LofturEn dagurinn fór að mestu í prjónaskap hjá systrunum og sjónvarpsáhorf.Um kvöldið borðuðum við á Einsa kalda þetta er forrétturinn Risahörpuskel, humar, ostarísottó en það var smá aska á diskinum sennilega síðan úr gosinu.Í aðalrétt Lambahryggvöðvi og nautakinn ásamt steinseljurót, rósakáli, blóðbergsósu það smakkaðist vel sagt vera 200 gr kjöt.Í eftirrétt réttur sem heitir Eldfjall sem var heit súkkulaðikaka, karamella, hafrakurl, vanilluís  þetta sprakk í munni og var gott með kaffinu.Á sunnudaginn tókum við Bía okkur gönguferð um Eyjar og þarna eru skemmtilegar hraunmyndir.Var nú hugsað til Sörens tendgarsonar þegar ég tók þessa mynd þarna gæti hann sprangaðþað er ekki að sjá að Bíu kvíði heimferðinni með reyndan skipstjóra sér við hlið.Um ferðina gefur Bía nánari upplýsingar en hún var góð og skemmtileg þessi ferð þó tvísýnt væri að við kæmustum heim á sunnudeginum.</description>
Ótitlað
      <description>Það var þokkalegt haustveður í dag við systkinin komum saman í myndatöku og það er sjáanlegt að við eldumst vel.Talið frá vinstri, Jón, Erna, Jóhann Björn, Guðjón Hjörtur, Helga Lofvísa og Ingimundur.Ég labbaði aðeins um skógræktina mína í Skarðshjöllum þetta er þokkalegur vöxtur.Þetta grenitré var gróðursett fyrir 10 árum þá tveim metrum frá birkinu en það er nú vaxið yfir það.</description>
Mynd
      <description>Setti inn myndir í albúmin.Nína og Sören kveðja Ísland eftir frí. </description>
Vindurinn stoppar ekki
      <description>Það er þetta með vindinn hann má bara ekki vera að því að stoppa og heldur áfram að taka snjóinn með sér, búið að vera leiðinda veður flesta daga sem komnir eru af árinu en samt nokkrir góðir ekki má gleyma þeim. Það er varla að maður hafi farið að heiman veðrið hefur ekki verið það gott.Valli kemur stundum í heimsóknBananatréin eru einhvað að gefa sig vantar sennilega meiri sól og raka.einn einn tveir dagurinn Valli að prenta rit.Siggi og Andrea á einn einn tveir deginumÞað þurfti líka að mæla blóðsykur.Það kom nýr sjúkrabíll í Búðardal, Skjöldur og Eyþór fengu mynd af sér við bílinn.</description>
Ýmislegt
      <description>Það var bilun í síðunnu sem nú er vonandi komin í lag. Þar er strekkingsvindur með rigningu núna.Var að taka saman hvað við Bía fórum með í matvæli á árinu 2014 Keyptum nýmjólk fyrir 10.127 krónur sem lætur nærri að sé 80 lítrar eða tæpir 7 lítrar á mánuði.en fórum með 44 lítra af léttmjólk eða tæpa 7 lítra á mánuði sem kostuð 6.729,- yfir árið.124 lítrar af mjólk og 60 lítrar af súrmjólk fóru á heimilinu en við borðum í vinnunni á virkum dögum. Þessi mynd er tekin 1998</description>
Mynd sem ég sá í dag
      <description>Var í Búðardal og sá þessa mynd þar spurði konuna sem var þar um myndina en hún vissi ekkert um tilurð hennar.</description>
Gleðilegt nýtt ár 
      <description>Óska öllum farsældar á nýu ári og þökk fyrir árið sem er liðið.Í byrjun desember vorum við Bía í sumarbústað í Kjarnaskógi það snjóaði helling.Gísli Mar var með okkur við vorum þar í 5 daga það var ekki sofið frameftir á þessum bænum.Þó það snjóaði nærri alla dagana þá var alltaf farið í pottinn það var hægt að nota lokið sem snjóhlíf.Svo komu jólin Nína Matthildur kom frá Noregi, Guðbrandur Snær og Sigurður Kári eru líka hérna.Og þarna eru nöfnurnar Sólveig María og Sólveig Hildur.Valgeir Örn og Sigurður Kári að horfa á einhvað skemmtilegt í sjónvarpinu.Ég fékk nú eina mynd af mér með þeim nöfnum þarna vorum við að horfa á Emil í Kattholti.Jæja þá var það gamlárskvöld, það var nú heldur fátt hjá okkur Valli var eina barnið sem var hjá okkur á gamlárskvöld þannig að við vorum þrjú þetta kvöld í kvöldmat og það sem eftir lifði kvölds við höfum ekki verið það áður, en einhverntíman verður allt fyrst. Það var hamborgarahryggur og malt og appelsín með en við tókum okkur góðan tíma í borðhaldið.Við fengum okkur Norskar pulsur og kex sem Hlynur og fj. gáfu okkur við nutum þessara kræsinga meðan við horfðum á skaupið sem var nú heldur innihaldslaust.Þá kom árið 2015.Ég skaut upp 5 rakettum og kveikti í 2 tertum það er það minnsta sem ég hef skotið upp síðustu ár, en þessi reykmerki komu frá Brennuhól en ég get nú ekki lesið í þau skilaboð.</description>
Gleðileg jól
      <description>Óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum liðin ár.Bjössi og Bía</description>
Ótitlað
      <description>DaginnÞað er langt síðan ég hef skrifað en er að hugsa um að bæta úr því næstu daga. Sumarið er búið að vera gott og haustið líka. Í byrjum sumars fórum við Bía ásamt Gísla Mar til Spánar þann 26. júni og þangað komu frá Álaborg Halldór Páll, Linda Hrönn og Hera Sóley aðfaranótt 27. júni og síðan komu Nína Matthildur og Bylgja þann 28. júni við vorum í íbúð sem við legðum af spánarfrí.is en það voru heiðurshjón fyrir austan fjall sem áttu íbúðina þarna var gott að vera, við fórum svo heim á sitt hvoru tímanum Nína og Bylgja fóru þann 9. júli en Halldór og fjölskylda fóru aðfaranótt 12. júní en við Bía áttum flug um hádegið og flugum til Gatwick flugvallar í Englandi. Nánar um það síðar.Þarna eru Gísli Mar og Hera Sóley mætt til að skoða sundlaugina þau náðu nú ekkert að sofa fyrstu nóttina en klukkan á myndinni er 2 tímum of sein er á íslenskum tíma.</description>
Mars byrjun
      <description>Já ég er marg búinn að lofa að skrifa einhvað hérna núna geri ég smá bragabót á því. Það hefur eiginlega verið norðan þræsingur síðan á áramótum með fáum sólardögum sennilega 6 en hitastigið hefur verið í kring um frostmark. En núna er vorið á leiðinni held ég Öskudagur var sólarlaus að mestu en hann á 18 bræður en það var skýað og hæglætis veður en hvít slæða yfir öllu.Hef lítið farið í Bjarnarfjörð þó tvisvar sinnum frá áramótum en núna er fært yfir Háls og vonandi verður það meira og minna fært fram á vor. Þann 1. mars var stúlka Sóleyjar og Hlyns skírð og fékk nafnið Lovísa Ósk og var hún skírð heima hjá foreldrum Sóleyar að viðstöddum nokkrum vottum að skírninni. Sóley Ósk er hér að halda stutta ræðu.Þetta var nú stutt ræða Hlynur Þór og óskírð stúlka bíða þolinmóð.Þá er nú presturinn mættur Núna verð ég að taka hlé á skrifunum og bæti við í kvöld eða á morgun myndum og texta.</description>
Við áramót
      <description>Núna eru við komin að áramótum eina ferðina enn árið hefur liðið alltof fljótt að mínu mati en sumir hafa beðið lengi eftir því að það megi sprengja flugelda. Það hefur ýmislegt gerst á þessu ári sem vert er að minnast á og gleðjast yfir nú síðast þegar Hlynur og Sóley eignuðust stúlku þann 28 desember og var hún 15 merkur og 52 sentimetrar á fæddist á sjúkrahúsinu á Akranesi. Nína kom heim um hátíðirnar og Gísli Mar kom um áramótin en Halldór, Linda og Hera Sóley voru heima hjá sér í Álaborg. Við krakkarnir fórum á brennu og sáum flugeldasýninguna hún var flott.Við óskum ykkur farsældar á komandi ári með þökk fyrir stundirnar á árinu sem er að líða.</description>
Fyrsta vika desember
      <description>Það sem er komið af þessari viku hefur verið ágætt síðustu daga kalt frost farið í 12° á C en ef maður er í bol og síðum þá finnur maður ekki fyrir kuldanum nema Bíu var svoldið kalt heima en ég lækkaði á ofnunum því ég var svo mikið klæddur en hún er ekki eins heitfengin í dag og hún var á sínum yngri árum. Var að skanna nokkrar gamlar myndir inn sem tengdafaðir minn sálugi hafði tekið af börnunum og fl.Þarna erum við Hlynur Þór að borða í eldhúsinu á Sogavegi sennilega verið upphafið að stækkun okkar Hlyns ég á þverveginn en Hlynur á hæðina.Þarna er Bía við Hraunfossa Þarna er hún í sumarbústaðnum ásamt Hildi Nönnu á þessum árum var blái liturinn alsráðandi enda tengdapabbi harður sjálfstæðismaður sem hefur smitast snemma í börnin.Þarna eru ferðafélagarnir Guðmundur Haukur og Magna en við fórum ferð saman í Borgarfjörðinn í haust.Þessir sáu um farastjórnina Guðjón Brjánsson og Snorri Jóhannesson sem sagði okkur frá lífinu í sveitinni.Lói er búinn að smíða gluggana í Kaldrananeskirkju og glerja þá. Eftir að mála eina umferð þá eru þeir tilbúnir til ísetningar.Þessi skrif verða að duga núna enda úr einu í annað en nokkrar nýjar myndir í myndaalbúmum. </description>
Nóvember
      <description>Nóvember er alveg að verða búinn og það sem helst bar við á síðustu dögum að ég hef farið til Reykjavíkur tvisvar í þessum mánuði. Fór 15. nóvember og horfði á fótboltaleik á Hótel Hilton en þar var leikurinn sýndur á þremur stórum skjám og fyrsti dagur jólabjórs sem mér var boðið upp á þar í hjólböruvís þurfti ekki að leggja krónu út og þakka það góða boð. Fór síðan 21. nóvember og erindið var að sækja börnin hans Valla en hann var á námskeiði á Ísafirði. Kom heim á föstudaginn en með smá viðkomu í Reykjanesbæ stoppaði þar ca 2 tíma verslaði í Bónus og fl. Fór á Reykhóla í dag það ringdi mikið á leiðinni og öll hálka farinn kom við í Barmahlíð og þar var veisla drakk kaffi þar með heimilisfólki og gestum. Veðrið hefur verið umheypingasamt í nóvember en núna er 9° hiti og allur snjór farinn.Það hafa einhverjir verið að spyrja eftir mynd af bragganum sem var fyrir ofan sundlaugina set hérna mynd af honum sem ég tók 1972 en þá var eldur borin að honum og restin síðan grafin á staðnum enda var farin að stafa hætta af honum bæði fok og eins gólfið orðið fúið.Bragginn.Þarna eru þeir Sveinn og Ólafur búnir að kasta eldspítunni.Þarna er Jón bróðir að slá og er nú ekki viss um það hver er að gá hvort grasið fari í vagninn.Nokkrar myndir af Odda í síðasta albúmi.</description>
Þetta helst núna
      <description>Já ég viðurkenni að ég hef ekki staðið mig í að setja inn færslur hérna. Það er helst að frétta að það er alltaf mikið að gera í vinnunni og kannski minna gert heima en skildi. Í gær fór ég suður til Reykjavíkur og var við útför Ingimars Elíassonar fyrrverandi sveitunga og eina kennarans sem ég hafði í barnaskóla.Í dag hef ég haldið mig innandyra náði í slæma kvef-pest með beinverkjum og viðeigandi líkamshita.Í október byrjun fórum við Bía í Borgarfjörð með góðu fólki og gistum þar eina helgi. Komum við í Borgarnesi á heimleiðinni, fórum í afmælisveislu hjá Ísabellu Sigrúnu. Hef annars varla farið út fyrir vegamót í þessum mánuði nema tvisvar í Búðardal en bæti úr því og fer á Akranes á næsta miðvikudag og legg af stað að óbreyttu 6:30 til að vera kominn 9:00.Veðrið var nú ekki eins vont og spáð var í þessum mánuði en það er komin snjór í fjöll og hálka á fjallvegi og stundum skafrenningi. Læt nokkrar myndir fylgja með.Þarna eru þær Sólveig H. Halldórsdóttir og Dýrfinna Torfadóttir við DeildartunguhverÞað er alltaf gaman að keyra um hlaðið á Kleppjárnsreykjum en það var norskur maður sem settist þar að og hét að sögn Klepp Járn ( Hann hefur sennilega verið járnsmiður og klappað járn í smiðjunni )Þar er oftast til jarðaber og kryddjurtir Bía splæsti í jarðaberjadós. Skemmtilegt hús.Mynd úr Borgarnesi eftir þessum stíg gengum við Bía á Bjössaróló Afmælistertan hjá Ísabellu Sigrúnu.</description>
Rólegt á makrílveiðum
      <description>Já það hefur verið rólegt á makrílveiðunum í dag sumir komu með 3 st en aðrir meira en um kl 17:00 var búið að landa á viktinni 15 tonnum sem er lítið.Fór í sundlaugina um miðjan dag og hitti nokkra sjómenn í pottinum sem voru ánægðir með sundlaugina og pottinn en fannst skrítið að Hólmakaffi væri lokað í miðri sumarumferð. Ég benti þeim á Caffé Riis en þar höfðu þeir ekki sé þar sem leiðin frá höfninni lá eftir Skjaldbökuslóð og Hafnarbrautinni þeir ætluðu að skoða matseðilinn þar í kvöld.Var að setja inn myndir sem ég tók í dagi í myndaalbúm.Er það kappsigling í löndun ?</description>
Hólmavíkurhöfn 9 ágúst
      <description>JæjaNúna sé ég að ég hef ekki verið að standa mig í færslum á síðuna en smá viðleitni kemur núna. Það er allt gott að frétta af mínu fólki ekki veit ég annað. Á Hólmavík hefur verið mikið makrílævintýri síðustu daga og höfnin full af bátum.Bátar að landa og koma inn til löndunar.Löndunarbið en það eru fleiri myndir í albúmi.</description>
Kjördagur 2013
      <description>Já það er komin tími á að skrifa nokkrar línur. Við Bía fórum á kjörstað í dag sem var í Hnyðju hvort Bía kaus rétt veit ég ekki en hún stendur í þeirri trú en ansi var hún fljót í kjörklefanum hefur ekki strikað marga út. Það sem eftir hefur verið af vetrinum og byrjun vorsins hefur veðrið verið heldur risjótt oft frekar kalt, frost á nóttinni og það spáir byl á morgun.Kosningarfáninn hjá Valla en Framsókn bauð uppá kökur og kaffi að Kópnesbraut 7 í dag.Var að grafa upp eplatréin í garðinum hjá Valla í dag en það er skafl í garðinum hjá honum.Siggi og Gísli með páskaeggin á páskadagsmorgun.Þetta er nokkru seinna ég langt kominn með mitt en Gísli rétt að taka innan úr sínu.Hérna er verið að græja kjötsúpuna í fermingarveisluna hjá Arnari en hún var 1. apríl.Gísli Mar búinn í sturtu og nýgeiddur. Arnar Már og Gísli Mar. Flottir frændur.Já ég náði því að komast á fund hjá Umhverfisráðherra.Já svona lýtur kirkjan út í dag</description>
Byrjun mars
      <description>Jæja febrúar var ekki með að þessu sinni en bætum úr því. Það hefur verið mjög gott veður undanfarið en svo kom bylur 6.mars og bætti við snjó. Svellin voru að mestu farin en varla hefur verið göngufært nema á mannbroddum. Skrapp á Egilstaði í endaðan febrúar og það var sumarfæri heimsótti Erlu og Boga og báðu þau fyrir bestu kveðjur til ykkar. Fór í mína árlegu skoðun til hjartalæknisins og gaf hann mér grænt ljós á minn lífstíl en spurði hvort ég hefði séð myndina um manninn sem hjólaði á fullu í 20 sek 7 daga vikunar ég játti því og þá sagði hann að það væri betra hjá mér að fara rólega í 20 mín á dag því hreyfingin væri fín. Þurfti nú að labba heim úr vinnunni í gær því ekki var fært fyrir ofan heilsugæsluna og þegar ég kom í morgun þá var bílinn lokaður inni. Ég setti smá myndband af veðrinu í gær undir myndbönd. Ætlaði suður á Reykjanes í dag en það varð nú ekki af því.Það var svell í þessa átt.og líka í hina áttina.Skrapp eftir hádegi í Búðardal á öskudaginn þessar ungu stúlkur tóku lagið fyrir Sigrúnu.Guðbrandur Snær bauð í skrautlega snúða en hann var nýorðin 4 ára.Við Bía áttum gjafabréf í humarmáltíð á Sjávargrillinu Skólavörðustíg taldi rétt að borða fisk áður en ég færi í heimsókn til hjartalækninins.Þessi mynd sýnir bylin í gær var mest allan daginn svona.Rétt sá í bílinn minn fyrir utan hjá Önnu og Hannesi þegar ég ætlaði að skjótast á honum suður í morgun.Ninni var búinn að taka það mesta af götunni en kom seinna og tók frá bílnum hélt að bílinn myndi ekki lokast inni á planinu hjá Hannesi en sé að það er ekki gott að stelast til að leggja í bílastæðið hjá honum þegar hann bregður sér af bæ.Síðan er hérna ein mynd af Ólafi ST hann er alltaf á sitt hvorri hliðinni.</description>
Miður janúar 2013
      <description>Það er nú kominn tími til að skrifa í byrjun janúar. Tíðin hefur verið risjótt snjókoma og rigning til skiftis og allt í svellum. Ávaxtatréin eru ýmist á kafi í snjó eða á bersvæði. Skrapp norður í Odda í dag og tók nokkrar myndir. Daginn er heldur að lengja og er bjart fram undir sex. Það má segja að Hólmavík líti svona út allt í svellum.Ávaxta tréin eru sum á snjólausu svæði.Aspirnar.Þessi ávaxtatré eru í harðfenni.Í Odda eru skaflarnir glerharðir og flughálir. Ávaxtatréin standa ekki upp úr snjónum.Á Bjarnarfjarðarhálsi norðanverður. séð í vestur.Á há Bjarnarfjarðarhálsi séð í suður, það er hálka.</description>
Gleðilegt nýtt ár
      <description>Við óskum öllum velfarnaðar á nýju ár með þökk fyrir það gamla.Mynd Tryggvi bacon.</description>
Gleðileg jól
      <description>Við á Hafnarbraut 18 óskum öllum gleðilegra jólahátíðar.Gísli Mar og  Bía skreyttu tréið þetta árið.</description>